Ný stjórn og almennur fundur
Almennt - miðvikudagur 02.maí 2012 - Vefstjóri - Lestrar 38 - Athugasemdir (1)
Aðalfundur Dalbjargar var haldinn þann 19. apríl í Sólgarði. Á fundinum var Haraldur Þór Óskarsson kosinn formaður og Sunna
Axelsdóttir kom inn í stjórn sem ritari.
Á sunnudag verður svo almennur fundur haldinn í Bangsabúð og húsið opnar kl. 20. Umfjöllunarefni verða m.a. handverkshátíðin,
sumardagskráin og fleira. Auðvitað verður kaffi og með því á boðstólnum.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!
Kveðja stjórnin.









