Almennt - miðvikudagur 11.janúar 2012 - Pétur Tryggvason - Lestrar 32 -
Athugasemdir (0)
Hjálparsveitin var beðin um aðstoð við að ná nokkrum hestum sem voru inn á Sölvadal í dag. Hlynur og Ingi fóru á báðum
jeppunum okkar og ferjuðu bændur inn að Hrauná þar sem hestarnir héldu til. Gekk vel að reka stóðið heim norður með
ánastaðafjalli og yfir hjá Eyvindarstöðum.