Hjálparsveitin Dalbjörg
Forsaga þessarar Hjálparsveitar er að árið 1981 fóru hreppsnefndirnar í gömlu hreppunum þrem að hugsa um að hvort ekki væri ráð að stofna Hjálparsveit í sveitinni til aðstoðar við sveitungana ef vá bæri að höndum. Haldnir voru fundir um alla sveit og voru undirtektir nokkuð góðar þó sínu mestar í gamla Saurbæjarhreppi. Seint á árinu 1982 var kominn vísir að fyrstu félögum í tilvonandi Hjálparsveit. Í mars 1983 var Hjálparsveitin formlega stofnuð og var í fyrstu kölluð Hjálparsveitin framar Akureyrar enda var fengin aðstoð frá þáverandi Hjálparsveit skáta á Akureyri sem leiðbeindu þessum hóp til að byrja með en fljót urðu menn þyrstir í meira sjálfstæði og fékk sveitin nafnið sem hún ber í dag og gekk í Landssamband Hjálparsveita sem síðar varð Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Mikill hugur var í hópnum og voru haldnir fundir reglulega var fengið inni hjá Kristjáni og Helgu í Steinhólaskála sem sýndu sveitinni mikinn velvilja.
1986 var fyrsta stóra ákvörðunin tekin í samráði við þau Steinhólahjón. Ákveðið var að byggja húsnæði fyrir sveitina og lagerpláss fyrir hjónin, hafist var handa árið 1986 og byggingin mátti heita fokheld um haustið. Á fimm ára afmæli sveitarinnar var húsið fullfrágengið og það vígt og tekið í notkun þá hafði sveitin einnig eignast ýmsan búnað og var líka tekin ákvörðun um bílakaup.
Veturinn 1988-89 fékk sveitin sinn fyrsta bíl, Ford Econoline. Árið 1994 keypti sveitin gamlan snjóbíl og þjónaði hann sínu hlutverki með nokkrum endurbótum. En þetta var ekki nóg, það þótti sýnt að það þyrfti að eignast öflugan jeppa og í janúar 1997 eignaðist sveitin Toyota Land Cruiser, fullbúinn hjálparsveitarjeppa. Fljótlega upp úr þessu var ljóst að rekstur Steinhólaskála yrði hætt og þótti þá tilvalið að kaupa lagerplássið til að fá meira húsrými þannig að í dag er sveitin í um 150 fermetra húsnæði. Árið 1998 eignaðist sveitin sinn fyrsta sleða af Polaris gerð, sem var svo endurnýjaður haustið 2000 þegar keyptir voru tveir Yamaha ventura 700 sleðar. Nú á þessu ári var síðan snjóbíllinn endurnýjaður þegar Éli (Snow trak árg.66) var skipt út fyrir Leitner 250 árg. 87 mjög öflugan snjóbíl með tönn. Þannig að í dag á sveitin ofantalið húsnæði og tæki auk mikils búnaðar til dæmis eru öll ökutæki búin fjarskipta og leiðsögutækjum af bestu gerð. Félagarnir eru um 50 talsins og eru búnir að taka hin ýmsu námskeið og er þeim skipt eftir kunnáttu og reynslu niður í flokka.
Hér hefur verið drepið á flestum vendipunktum í ferli sveitarinnar frá upphafi.
Ingvar Þ. Ingólfsson
2001






