Hjálparsveitin Dalbjörg

Hjálparsveitin Dalbjörg, Eyjafjarðarsveit

1

Unglingadeildin Bangsar

 
Unglingadeild Dalbjargar, Bangsar, var stofnuð 2005 og var fyrsti fundur hennar haldinn 13. mars. Krakkarnir geta byrjað í deildinni þegar þau eru að byrja í 9. bekk. Aðal tilgangur deildarinnar er að kynna starf björgunarsveitarinnar fyrir unglingunum. Stóri þátturinn er að fá krakkana til að koma út frá tölvunum og sjónvarpinu til að gera eitthvað uppbyggilegt eins og að fara í gönguferðir, sig, klifur, læra skyndihjálp, læra á áttavita og fleira.

Deildin fundar eða er með æfingar eða námskeið mánaðarlega og meðal þess sem krakkarnir hafa gert er kassaklifur, sig í Munkaþverárgilinu, gönguferð í Borg í Djúpadal og einnig fóru krakkarnir í klifurvegginn í húsi Björgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri. 

Unglingarnir standa sjálfir undir rekstri deildarinnar en Aðalsteinn í Fallorku styrkti við bakið á deildinni við stofnun hennar. Er krökkunum ætlað að sjá um sig sjálf og hafa þau t.d. verið með dósasöfnun en það vantar samt fleiri leiðir til að safna fé þar sem fleiri hópar eru um hituna.
Starfið er orðið mjög öflugt og er foreldrum velkomið að kynna sér starf deildarinnar og geta þeir mætt á fundi með krökkunum sínum. Þetta er orðin ein af stærstu félagseiningum í Eyjafjarðarsveit og sú líflegasta.

 

 Sunna Axelsdóttir

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning