Hjálparsveitin Dalbjörg

Hjálparsveitin Dalbjörg, Eyjafjarðarsveit

3

Viðmiðunarreglur fyrir útkallsskrá Dalbjargar

Smellið hér til að skoða námsgrunn ykkar hjá Landsbjörg.

  • Notendanafn = kennitala (Jónasar)
  • Lykilorð = Jóna.1234

Kröfur og skilyrði:

Aðili þarf að vera orðinn 18 ára og vera fullgildur félagi í Hjálparsveitinni Dalbjörg til að vera á heildar- og/eða tækjaútkallslista.
Aðili þarf að eiga og/eða hafa góðan aðgang að viðeigandi búnaði til að teljast útkallshæfur.
Lágmarksbúnaður:

  • Góður fatnaður
    • Landsbjargargallinn (skilyrði)
    • Hlý nærföt
    • Flíspeysa/buxur eða sambærilegt
  • Gönguskór
  • Vasaljós
  • Höfuðljós
  • Hjálmur
  • Bakpoki
  • Skyndihjálparbúnaður

Námskeið:

Aðili þarf að hafa lokið vissum námskeiðum innan Björgunarmanns 1 til að mega vera á heildarútkallslista Dalbjargar.


Lágmarksnámskeið fyrir heildarútkall:
 Fyrsta hjálp 1
 Fyrsta hjálp 2 (B2, en skyldunámskeið)
 Ferðamennska og rötun
 Björgunarmaður í aðgerðum

Auk þessa er miðað við að þeir sem eru á tækjaútkallslista séu búnir með námskeiðin í Björgunarmanni 1. Þeir sem eiga eftir námskeið skulu leggja allt kapp á að ljúka þeim og afla sér framhaldsmenntunar.

Björgunarmaður 1:
 Fyrsta hjálp 1
 Fyrsta hjálp 2 (B2, en skyldunámskeið)
 Fjarskipti 1
 Fjallamennska 1
 Snjóflóðaleit
 Leitartækni
 Ferðamennska og rötun
 Björgunarmaður í aðgerðum
 Slöngubátur

Athuga skal að það fer alltaf eftir eðli útkallsins hvaða kröfur eru gerðar til björgunarmanna. Ef stjórnandi aðgerðar telur aðila ekki vera hæfan til útkallsins vegna skorts á kunnáttu, búnaði eða öðru, getur stjórnandi vísað aðilanum frá eða falið honum annað verkefni.

Við minnum á að í  Siðareglum Landsbjargar, sem við lútum öll, segir að:

“Félögum ber að hlýða stjórnendum aðgerða eða æfinga og fylgja því skipulagi sem sett hefur verið upp af stjórnendum.”


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning