Hjálparsveitin Dalbjörg fékk styrk frá Isavia árið 2012 til kaupa og smíði á nýrri búnaðarkerru fyrir sveitina. Það var Agnar í Bílagerði á Hvammstanga sem var fenginn til að smíða kerruna að forskrift Dalbjargarfélaga. Kerran var afhent í nóvember 2012 og er mikil breyting að geta nýtt slíkt tæki í verkefnum og útköllum.