Flýtilyklar
Aðalfundi 2015 lokið
Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2015 var haldinn í gær, sumardaginn fyrsta.
Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf, þ.á.m. stjórnarkjör. Í ár voru gjaldkeri og þrír stjórnarmenn kosnir í stjórn. Í kjöri til gjaldkera voru Jóhannes Jakobsson og Alexander Gunnar Jónasson, en eftir kosningu hélt Jóhannes stöðu sem gjaldkeri sveitarinnar.
Í kjöri til almennrar stjórnarsetu voru Sunna Axelsdóttir, Eiður Jónsson, Ingvar Þ. Ingólfsson, Guðlaug Sigríður Tryggvadóttir, Stefán Magnús Jónsson, Alexander Gunnar Jónasson og Bjarney Guðbjörnsdóttir. Kjöri til almennrar stjórnarsetu náðu Sunna Axelsdóttir, Eiður Jónsson og Ingvar Þ. Ingólfsson svo stjórn er óbreytt frá fyrra ári. Fyrsti varamaður er Stefán Magnús Jónsson og annar varamaður Alexander Gunnar Jónasson.
Mæting á fundinn var með besta móti og þökkum við félögum kærlega fyrir komuna og skemmtilegar umræður. Við sjáumst næst á almennum fundi þann 3. maí nk.
Kveðja, stjórnin.