Flýtilyklar
Neyðarkall og rafhlöður
05.11.2012
Í kvöld hefst yfirferð okkar um sveitarfélagið við að selja Neyðarkallinn og rafhlöður í reykskynjara og verðum við á
ferðinni næstu 4-5 kvöld. Við munum byrja næst Akureyri beggja megin og halda fram eftir. Neyðarkallinn seljum við eins og áður á 1500 kr. til
fjáröflunar, en rafhlöðurnar eru á kostnaðarverði og viljum við minna fólk á mikilvægi þess að skipta um rafhlöður
í reykskynjurum einu sinni á ári.
Við þurftum að fresta þessari yfirferð fram yfir helgi vegna veðurs og þó aðallega vegna mikilla anna hjá hjálparsveitinni, en alls eru
skráð 14 útköll og aðstoðarbeiðnir frá fimmtudegi til sunnudags. Þau voru t.d. við að bjarga búfé, draga bíla, koma
fólki til síns heima, aðstoða viðgerðarflokka og stórt útkall í Skagafirði við leit að týndum manni.
Við vonum að fólk taki vel á móti mannskapnum okkar eins og undanfarin ár.
Við vonum að fólk taki vel á móti mannskapnum okkar eins og undanfarin ár.
comments powered by Disqus