Flýtilyklar
Aðalfundi lokið
21.04.2008
Aðalfundurinn okkar var haldinn síðastliðið laugardagskvöld að Öngulsstöðum. Mætingin var mjög góð og fundurinn skemmtilegur
í alla staði. Það voru 5 manns sem skráðu sig í sveitina, og 9 manns sem starfað hafa með okkur frá síðasta aðalfundi voru
formlega teknir inn sem félagar. Einnig kusum við nýja stjórn og samþykktum lagabreytingar á aukafundi.
Fundarstjóri var Jón Jónsson, Ragnar Jónsson fór yfir ársskýrslu og þeir Helgi Schiöth og Kristján Hreinsson fóru yfir ársreikningana.
Stjórnarkosningar voru eftir kaffihlé. Þær voru mjög spennandi, margir frambærilegir frambjóðendur og nýja stjórnin er svona:
Formaður: Eiður Jónsson
Gjaldkeri: Helgi Schiöth
Svo eru það Ragnar Jónsson, Hermann Ingi og Ingvar Ingólfsson sem eiga eftir að skipta með sér almennum stjórnarstörfum. Varamenn eru Pétur R. Tryggvason og Sigrún Jóna Sigurpálsdóttir.
Svo viljum við minna á Tækjamótsfundinn sem verður í kvöld í Bangsabúð, allir sem hafa áhuga á Tækjamótinu um næstu helgi að mæta!

comments powered by Disqus