Flýtilyklar
Aðalfundur 2014
25.04.2014
Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2014 var haldinn í gær, sumardaginn fyrsta.
Á dagskrá fundarins voru venjuleg aðalfundarstörf, þ.á.m. stjórnarkjör. Í ár voru formaður og þrír stjórnarmenn kosnir í stjórn. Nýr formaður er Kristján Hermann Tryggvason. Gjaldkeri er sem fyrr Jóhannes Jakobsson og almennir stjórnarmenn Sunna Axelsdóttir, Eiður Jónsson og Ingvar Þ. Ingólfsson.
Einnig var valið nafn á nýja húsið okkar og fékk það nafnið Dalborg.
Við þökkum félögum fyrir góða mætingu á fundinn og sjáumst næst á almennum fundi þann 4. maí nk.
comments powered by Disqus