Flýtilyklar
Aðalfundur Dalbjargar 2022
14.04.2022
Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2022 verður haldinn sunnudaginn 1. maí, kl. 20:00 í Dalborg. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar verða í boði og vonumst við til að sjá sem flesta. Nýjir félagar eru boðnir velkomnir.
Uppstillingarnefnd minnir á að framboð til stjórnar þurfa að berast í síðasta lagi viku fyrir aðalfund samkvæmt lögum Hjálparsveitarinnar Dalbjargar.
Hafi félagar áhuga á því að bjóða sig fram í stjórn skal hafa samband við uppstillingarnefnd, Ólaf Inga Sigurðsson eða Davíð Almar Víðisson, í síðasta lagi sunnudaginn 24. apríl.
comments powered by Disqus