• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Aðalfundur Dalbjargar 2023

Aðalfundur Dalbjargar 2023
Skemmtileg hópmynd úr einni unglingadeildarferð

Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 30. apríl á Ytra-Gili hjá þeim eðalhjónum Sigurgeir og Bylgju.

Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Sigurgeir Hreinsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.

Kosið var um 3 aðila í stjórn og komu 3 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.
Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér til stjórnarsetu:

Elmar Sigurgeirsson
Hreiðar Fannar Víðisson
Víðir Sveinn Ágústsson

Einnig var kosið til gjaldkera og gaf Jóhannes Jakobsson kost á sér, en hann hefur sinnt gjaldkerastarfinu í nokkurn tíma. Ekki bárust fleiri framboð svo Jóhannes var kosinn gjaldkeri Dalbjargar.

Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:

Bjarki Búi Ómarsson
Gyða Sjöfn Njálsdóttir


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is