Flýtilyklar
Aðalfundur og framboð
21.04.2014
Fimmtudaginn 24. apríl kl. 20:00 verður haldinn aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði sveitarinnar sem áður hýsti blómaskálann Vín. Kaffiveitingar verða á boðstólnum og hvetjum við sem flesta til að mæta, nýja sem eldri félaga.
Viðbót - Þeir sem hafa hug á því að bjóða sig fram til stjórnar geta haft samband við Jóhannes Jakobsson, sími 8963216 eða Elmar Sigurgeirsson, sími 8917981. Gott væri ef framboð kæmu fram með einhverjum fyrirvara, s.s. fyrir páska, en einnig er frjálst að bjóða sig fram síðar eða á aðalfundi.
comments powered by Disqus