Flýtilyklar
Aðalfundur Dalbjargar 2008
19.04.2008
Laugardagskvöldið 19. apríl kl. 20:00 verður aukaaðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar haldinn. Á dagskrá eru lagabreytingar.
Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2008 verður haldinn laugardagskvöldið 19. apríl kl. 20:30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Fundirnir verða haldnir að Ferðaþjónustunni á Öngulsstöðum. Kaffiveitingar verða í boði og vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Fjölskyldudagurinn okkar verður einnig sama dag. Það kemur betur í ljós síðar hvar hann verður haldinn, en eins og alltaf verður þetta rosalega skemmtilegt og hvetjum við alla til að taka daginn frá.
Kveðja stjórnin.
comments powered by Disqus