Flýtilyklar
Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2010
Aðalfundur Dalbjargar verður haldinn í Sólgarði, fimmtudaginn 15. apríl kl. 20:30. Á dagskrá eru venjuleg
aðalfundarstörf.
Að þessu sinni verður kosið um alla
stjórnarmenn; formann, gjaldkera og þrjá stjórnarmenn. Við hvetjum fólk til að íhuga framboð og kynna sér lög
Hjálparsveitarinnar Dalbjargar í því sambandi. Þeir sem ætla að gefa kost á sér eru beðnir um að hafa samband við Hermann í
síma 8678586 eða á tölvupóstfang hemmi_7@hotmail.com í síðasta lagi mánudaginn 12. apríl.
Við hvetjum alla til að mæta, nýta sinn kosningarétt og gæða sér á
veitingum í góðra vina hópi.
Ef einhver hefur áhuga á því að baka fyrir fundinn er sá hinn sami beðinn um
að láta Marsibil vita í síma 8689094.
Kveðja, stjórnin.