Flýtilyklar
Aðalfundurinn 18. apríl
20.04.2013
Eins og flestir vita var aðalfundur Dalbjargar haldinn þann 18. apríl sl. í Félagsborg.
Helst ber að nefna eftir fundinn að Sunna og Pétur gengu úr stjórn en Eiður og Kristján Hermann voru kosnir nýjir inn. Ný stjórn mun
skipta með sér hlutverkum á fyrsta fundi og færa nýjar upplýsingar inn á síðuna. Varamenn eru Víðir og Ingvar. Haraldur og
Höskuldur eru í húsnefnd og einnig var skipuð sumarnefnd til að sjá um skemmtilega viðburði í sumar; Bjarney, Eydís, Palli og
Smári.
Næst á dagskrá hjá okkur er sýning á búnaðinum okkar á sumardaginn fyrsta, þ.e. næsta fimmtudag á
Melgerðismelum, síðan er flugslysaæfing þann 4. maí nk., almennur fundur 5. maí og Landsþing og björgunarleikar 24.-26. maí. Svo
þarf auðvitað að huga að Handverkshátíðinni - svo nóg er að gera.
comments powered by Disqus