• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Aðstoð í Sölvadal

Aðstoðarbeiðni barst Dalbjargarfélögum aðfaranótt gamlársdags ofan úr Sölvadal, en þar höfðu ábúendur á Eyvindarstöðum misst vélsleða ofan í gil við virkjun sem er þar. Fóru þrír félagar á tveimur bílum til hjálpar og við tók töluverð vinna við að spila sleðann upp, með blakkir, álkarla og annan búnað. Aðgerðin tók um 6,5 klst. í allt, en allt gekk vel og voru menn og búnaður heilir á eftir. 


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is