Flýtilyklar
Æfingaferðir um páskana
01.04.2013
Nú um páskana hafa verið farnar tvær æfingaferðir af jeppahópnum okkar.
Sú fyrri var farin laugardaginn 30. mars á Flateyjardal. Fjórir kappar fóru á báðum jeppum sveitarinnar og fengu reynsluminni ökumenn að
spreyta sig stóran hluta ferðarinnar. Veðrið lék við þá og dagurinn lukkaðist mjög vel.
Einnig var farin ferð ásamt félögum björgunarsveitarinnar á Dalvík inn á Skíðadal og dalina tvo inn af þeim á annan
í páskum. Sjö manns fóru á Cruiser og einum einkabíl frá okkur ásamt fjórum félögum á tveimur jeppum
Dalvíkurmanna. Veðrið var alveg frábært og var mjög gaman að koma á slóðir sem ekkert okkar hafði ekki komið á áður.
Þökkum Dalvíkurfélögum kærlega fyrir daginn.
Annars er aðalfundur næst á dagskrá, verður haldinn 18. apríl og auglýstur betur í vikunni.
comments powered by Disqus