Flýtilyklar
Dalbjargarútilega!
06.07.2015
Næsta föstudag, 10. júlí, mun sumarnefndin endurvekja útilegustemninguna okkar í Leyningshólum! Það eru orðin nokkur ár síðan síðast.
Herlegheitin byrja kl. 18 og stefnan er að borða saman góðan mat í boði nefndarinnar og hafa gaman saman. Það er frábært að tjalda í Leyningshólum svo þau sem hafa áhuga á því mega endilega grípa með útilegubúnaðinn og rifja upp hvernig skal tjalda eins og einu kúlutjaldi. Vonandi reddar nefndin svo einhverjum með gítar svo hægt verði að syngja öll helstu lögin.
Skráning er við þessa frétt - vonandi sjáum við frábæra mætingu!
Kv. Súpersumarnefndin!
comments powered by Disqus