• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Sameiginleg sleðaferð björgunarsveita

Sameiginleg sleðaferð björgunarsveita
Gunni Garðars og Pétur R.
Næstkomandi sunnudag 7. mars boðar sleðaflokkur Súlna til sleðaferðar um nágrenni Akureyrar. Ferðin er ætluð fyrir sleðaflokka björgunarsveita á svæði 11 og nágrennis.
Keyrt verður frá hitasveituskúrunum sem eru við ruslahaugana ofan Akureyrar.
Farið verður um Glerárdal og þar í kring. Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í ferðina en mæting er klukkan 10:00 og munu Smári Sig og Maggi Arnars leiða hópinn.
Veðurspáin er góð, hæg vestanátt og hálfskýjað.
Þeir sem hug hafa á að fara í ferðina skulu fylgjast með heimasíðu Súlna seinnipart á laugardag því breyting getur orðið á skipulagi ef veðurspáin breytist.
Með von um góða mætingu
Sleðaflokkur Súlna www.sulur.is

comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is