Flýtilyklar
Tækjamót 2008
26.04.2008
Hjálparsveitin Dalbjörg býður til Tækjamóts laugardaginn 26. apríl.
Tækjamótið verður haldið að þessu sinni í Nýjadal og verður farið um næsta nágrenni norðan við.
Föstudagur
Menn eru að týnast á svæðið á föstudagskvöldinu. Þá er farið yfir leiðir morgundagsins og skipt í hópa; bílar saman, snjóbílar saman og sleðar saman.
Laugardagur
Hópar melda sig inn við Hópstjóra sína kl 09:00. Lagt
verður af stað kl 10:00. Ekki er búið að ganga frá leiðum en þær verða settar á heimasíðuna þegar nær dregur,
þetta fer allt eftir snjóalögum. Grillað verður í boði SL í Nýjadal kl 19:00.
Skipulagning er í höndum heimamanna Hjálparsveitarinnar Dalbjargar. Menn frá sveitinni munu leiða
hópana.
Skráning er á Landsbjargarvefnum.
comments powered by Disqus