Flýtilyklar
Ferð næstu helgi.
28.03.2008
Nú ætlum við að fara með tækin okkar út á Flateyjardal um næstu helgi. Hugmyndin er að leggja af stað frá Akureyri kl 18 og keyra
austur í Dalsmynni að Þverá. Þar keyrum við síðan yfir Flateyjardalsheiði að Heiðarhúsum, þar sem við grillum pylsur og
gistum.
Það er góð spá fyrir Laugardaginn og hann ætlum við að nýta til að þvælast um dalinn og niður að sjó. Ferðin er
fyrir félaga hjálparsveitarinnar þannig að menn þurfa að vera orðin 16 ára til að fara með. Menn þurfa að hafa með sér nesti,
svefnpoka og jafnvel bretti eða annað rennelsi. Síðan er mönnum frjálst að koma á sínum tækjum, bílum, fjórhjólum eða
sleðum. Þannig að nú er bara að skrá sig. Það vantar síðan ökumenn á öll tækin þannig að heyra í
Pétri 861-4085 eða Smára 866-6186 sem fyrst svo að það sé hægt að púsla þessu saman.
comments powered by Disqus