• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Fjallaferð

Fjallaferð
Hemmi ekkert smá fallegur..(með hjálm)

Um næstu helgi verður farið í 3 daga fjallaferð á vegum sveitarinnar. Lagt verður á stað á föstudags seinnipart ca. 16-18 og haldið austur í Bárðardal, ekki er búið að ákveða hvar verður gist en það koma nokkrar leiðir til greina og skálar eins og Laugafell, Réttartorfa, Dyngjufjallaskáli, Dreki og Kistufell.

Ráðgert er að koma heim seinnipartinn á sunnudag. Menn þurfa að vera búnir að skrá sig hjá Ragga 8660524 eða Víði 8999821 fyrir miðvikudagskvöldið og jeppamenn hvattir til að taka þátt svo að sem flestir komist með. Skálagjöld eru 3500 krónur og þurfa menn að hafa það með sér í reiðufé, innifalið er sameiginlegt grill á laugardagskvöldið og gríðarleg stemming.

comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is