• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Fjölskyldudagur Dalbjargar

Fjölskyldudagur Dalbjargar
Fólk og tæki í Stóru Dalbjargarferðinni 2012

Hinn árlegi fjölskyldudagur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar verður haldinn fimmtudaginn 1. maí nk. 

Við ætlum að skemmta okkur saman á Víkurskarði og hefst dagurinn þar kl. 11:00, en veðurspáin fyrir daginn er mjög góð. Dalbjörg býður upp á grillaðar pylsur og drykki á staðnum. Sleðar sveitarinnar verða klárir til að skutla fólki upp í brekkurnar og nú er um að gera að fá fjölskylduna með og taka með sér allt sem rennur! 

Við bendum á að ef einhvern vantar far, þá fara jeppar sveitarinnar úr Dalborg kl. 10:30 og verða með einhver laus sæti. 

Hlökkum til að sjá sem flesta!


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is