Flýtilyklar
Handverkshátíð og landbúnaðarsýning 2016
Nú er undirbúningur fyrir þennan skemmtilega viðburð í fullum gangi og alltaf nálgast hátíðin. Hún er með stærra móti í ár þar sem einnig er haldin landbúnaðarsýning samhliða handverkshátíðinni. Þetta verður því bara fjör og skemmtileg vinna með öðrum félagasamtökum í sveitinni. Við minnum á að þessi hátíð er okkar helsta fjáröflun yfir árið og því er um að gera að allir sem geti taki sér tíma og aðstoði við það sem þarf að gera til að allt gangi upp.
Næsta skref er að setja upp tjöldin, en sú vinna fer fram dagana 2. og 3. ágúst nk., þ.e. þriðjudag og miðvikudag eftir verslunarmannahelgi. Við þurfum allar lausar hendur í það eins og venjulega, þá er auðvelt að drífa þetta af!
Síðan hefst hátíðin sjálf fimmtudaginn 4. ágúst og stendur hún til sunnudagsins 7. ágúst. Opnunartímar eru frá kl. 12-19 fimmtudag til laugardags og 12-18 á sunnudegi. Við þurfum fólk í gæslu á hátíðinni sjálfri og síðan þarf að taka herlegheitin niður þegar öllu er lokið.
Endilega skráið ykkur í vinnu og á vaktir hér í athugasemdum eða hjá Jóhanni í síma 8474041.
Þriðjudagur 2. ágúst
Uppsetning tjalda o.fl. ca. kl. 8-17. Vantar allan mannskap sem hægt er að fá!
- Ragnar, Ingi, Jói, Bubbi, Íris, Eiður, Eysteinn, Jóhann
Miðvikudagur 3. ágúst
Uppsetning tjalda o.fl. ca. kl. 8-17 (eða eftir þörfum). Vantar allan mannskap sem hægt er að fá!
- Ragnar, Ingi, Jói, Bubbi, Íris, Eiður, Eysteinn, Jóhann
Fimmtudagur 4. ágúst
Gæsla á sýningu kl. 10-19.
- Bjarney 16-19, Íris 12-16, Snorri allan daginn, Ólína 12-15, Hreiðar allan daginn
Föstudagur 5. ágúst
Gæsla á sýningu kl. 10-19.
- Bjarney 16-19, Íris 12-16, Snorri og Hreiðar allan daginn
Föstudagskvöld 5. ágúst
Grill og kvöldvaka kl. 18-24 (hér þarf margar hendur)
- Kristinn, Ragnar, Eiður, Snorri, Hreiðar, Bubbi, Alma, Jonni, Bjarney, kannski Rósa
Laugardagur 6. ágúst
Gæsla á sýningu kl. 10-19.
- Bjarney í gæslu, Alma frá kl. 14, Jonni seinnipart, Hreiðar, Snorri, Kristinn
Sunnudagur 7. ágúst
Gæsla á sýningu kl. 10-19.
- Jonni seinnipart, Snorri, Hreiðar, Unnur
Svo þurfum við allar lausar hendur til að taka sýninguna niður!
Tekið niður eftir hátíð, mæting kl. 17.
- Eiður, Bubbi, Íris, (Alma), Ragnar, Eysteinn