Flýtilyklar
Húsnæðis fréttir
Til hamingju kæru félagar nú höfum við fest kaup á nýju húsnæði. Þetta eru mikil tímamót fyrir okkur þar sem núverandi húsnæði sem byggt var utan um starfsemi sveitarinnar 1986 og þótti mikill fengur fyrir hina nýstofnuðu hjálparsveit. En þegar árin líða og búnaði hjálpasveitarinnar fjölgar þá er núverandi húsnæði orðið barn síns tíma og orðið allt of lítið fyrir starfsemi sveitarinnar. Hugmyndin var sú að byggja nýtt hús og ákveðið var að leita að mögulegum stað nær byggðakjarna sveitarinnar, en leitin að byggingarlóð reyndist torveld þar til nú á haustmánuðum var farið að athuga með húsnæðið sem áður hýsti Blómaskálan Vín. Fyrir nokkrum dögum náðust samningar um kaup á Blómaskálanum Vín og sjáum við mikla möguleika fyrir okkar starfsemi í því húsi.