• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Landsþing

Landsþing
Jóhannes að taka á móti styrk
Um síðustu helgi var mikið um að vera en þá var landsþing Slysavarnarfélags Landsbjargar, árshátíð og björgunarleikar haldnir á Akureyri og nágrenni. Margir félagar Dalbjargar komu að skipulagningu og þátttöku á þessum viðburðum og sóttu 14 manns árshátíð félagsins á laugardagskvöldið sem var loka hnikkur á viðburðaríkri helgi. 

Á þinginu var úthlutað úr ISAVIA sjóði sem við sóttum í og fengum styrk upp á 300.000 kr til kaupa á sjúkrabúnaði í björgunarkerru.

Björgunarleikar voru haldnir á laugardeginum og gerðu okkar menn sér lítið fyrir og náðu 4 sæti.



comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is