Flýtilyklar
Óveðrið í nótt
09.02.2008
Mikið óveður gekk yfir landið í gærkvöldi og í nótt. Í Eyjafirði var mjög hvasst og fór vindhraði í 47,3
metra á vindmæli við Öxnafell. Nokkrar skemmdir urðu á trjám og einnig fauk stór þakgluggi af lausagöngufjósi á
bænum Ytri-Tjörnum. Björgunarsveitin var kölluð út til að aðstoða ábúendur við að negla fyrir gluggann.
comments powered by Disqus