Flýtilyklar
Sleðadeildaræfing
01.03.2010
Í gær, sunnudag, fór sleðadeildin í æfingarferð um Súlumýrar, Reykárbotna, Vaðlaheiði og Fnjóskadal. Voru það
sex félagar úr Dalbjörg en að auki bættist einn Súlumaður með í hópinn og keyrði með okkur.
Skyggni var frekar dapurt framan af og mikil snjóblinda en seinnipartinn rættist úr veðri. Eknir voru 110 km. Þetta var jómfrúarferð nýju
sleðanna og reyndust þeir gríðarvel.
comments powered by Disqus