Flýtilyklar
Sprungið dekk
20.07.2009
Á dögunum fór einn félagi Dalbjargar, Ingvar í Ártúni, til hjálpar drengjum sem voru fastir inni á Eyjafjarðardal þar sem
það hafði sprungið dekk undir bílnum þeirra. Þeir voru búnir að bíða í nokkrar klukkustundir þar sem ekkert
farsímasamband var á staðnum en svo vel vildi til að fólk sem átti leið hjá gat komið skilaboðum til byggða um að þá
vantaði hjálp. Ingvar keyrði til þeirra með varadekk sem var svo skipt um, og drengirnir komust heilu og höldnu til byggða.
comments powered by Disqus