• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Stefnumótunarfundur

Nú er að fara af stað vinna við stefnumótun Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Umsjón með því starfi hefur Dr. Haukur Ingi Jónasson. Það er afar mikilvægt fyrir þá sem sitja í stjórn S.L. hverju sinni að hafa skýra stefnu sem endurspeglar vilja grasrótarinnar. Stefnumótunin mun því fara fram víða og með þátttöku margra enda mikilvægt að vanda til verka þegar stefna félagsins næstu árin er mótuð. 

Þann 31. mars verður stefnumótunarfundur með Hauki Inga haldinn í húsnaði Súlna, björgunarsveitarinnar á Akureyri, Hjalteyrargötu 12. Fundurinn stendur frá kl. 18-21 og er öllum opinn. 

Stjórn Dalbjargar hvetur alla sem hafa áhuga á málefnum Slysavarnafélagsins Landsbjargar til að mæta á fundinn.

 

 


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is