Flýtilyklar
Takk fyrir helgina!
13.08.2013
Stjórnin vill þakka öllum þeim sem komu að vinnu við Handverkshátíðina síðastliðna viku, hvort sem það var
undirbúningur, uppsetning, vinna á hátíðinni sjálfri, tiltekt á eftir og allt saman. Félagar Dalbjargar stóðu sig með
prýði; þið megið vera stolt af ykkur.
Við þökkum einnig öllum félögunum sem unnu að þessu með okkur, Ester framkvæmdastjóra og öllum þeim sem að
hátíðinni komu á einn eða annan hátt. Hátíðin heppnaðist með eindæmum vel og allir eru ánægðir með
helgina.
Við tókum þetta svo sannarlega með trompi, kæru félagar.
Stjórnin.
comments powered by Disqus