Flýtilyklar
Tilkynning til Dalbjargarfélaga og sveitunga
11.06.2008
Við vorum beðin um að koma tilkynningu frá fjölskyldunni í Grænuhlíð á framfæri. Nú er komin tímasetning á veisluna
líka.
Laugardaginn 21. júní verður um það bil eitt og hálft ár liðið frá skriðuföllunum hjá Grænuhlíð. Í
tilefni af því að allt er komið í samt horf, nokkurn veginn eins og það var áður en skriðurnar féllu, vill fjölskyldan
bjóða öllum þeim sem hjálpuðu til eða komu að málinu á einn eða annan hátt til veislu þennan dag í
Grænuhlíð. Þar verður kaffi og grillað ofan í mannskapinn frá hádegi og fram á kvöld.
Við hvetjum fólk til að taka daginn frá til að heilsa upp á fjölskylduna í Grænuhlíð og samfagna þeim.
comments powered by Disqus