Flýtilyklar
Útkall - Verðmætabjörgun í Hörgárdal
28.01.2018
Hjálparsveitin var kölluð út klukkan rúmlega 8 að morgni 27. janúar.
Flutningabíll hafði oltið í Hörgárdal og timbur og matvara dreifst um töluvert svæði. Verkefni sveitarinnar var verðmætabjörgun. Björgunarfólk frá Dalbjörg var níu talsins en auk þeirra voru á staðnum fjórir frá björgunarsveitinni Súlur, á Akureyri.
Verkefninu var lokið um klukkan 15.
comments powered by Disqus