• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Útkall F3

Útkall F3
Palli að segja Markúsi frá hetjudáðum næturinnar. =)

Eftirgrennslan eftir þýskum ferðamanni sem saknað er og talinn er vera staddur norðan Vatnajökuls bar engan árangur í nótt. Vélsleðamenn frá Flugbjörgunarsveitinni á Hellu, Hjálparsveitinni Dalbjörg í Eyjafirði og Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri fóru upp úr miðnætti og könnuðu alla skála á leiðinni í Nýjadal á því svæði sem síðast heyrðist til mannsins.

 Í ljós kom að hann hafði skrifað í gestabók í Versölum 14. maí en engin önnur ummerki sáust um ferðir hans.
Sleðamenn komu niður um 10 leitið í morgun eftir 250 km akstur inn í Laugafell, Sandbúðir, Galtaból, Landakot og Bergland.

comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is