Flýtilyklar
Útkall í Garðsárdal
25.06.2008
Á mánudaginn rétt fyrir kl. 16 var Dalbjörg kölluð út til aðstoðar í Garðsárdal. Þar hafði maður dottið á
vélhjóli og fótbrotnað. Óhappið varð austan við ána til móts við eyðibýlið Helgársel.
Fjórir Dalbjargarmenn fóru af stað á fjórhjólum og fjórir til viðbótar komu á eftir á tveimur jeppum sveitarinnar. Einnig voru 3
bílar frá Björgunarsveitinni Súlum með í för.
Aðgerðin gekk vel, búið var um manninn og hann borinn á börum nokkur hundruð metra. Hann var kominn á sjúkrahús um kl. 18:00.
Aðgerðin gekk vel, búið var um manninn og hann borinn á börum nokkur hundruð metra. Hann var kominn á sjúkrahús um kl. 18:00.
comments powered by Disqus