Flýtilyklar
Útkall í Þorgeirsfjörð
09.09.2010
Tækjaflokkur Dalbjargar var boðaður út kl 21:30 í gærkvöldi vegna veiks manns í Þorgeirsfirði út í Fjörðum. Fóru sjö manns á tveimur jeppum úteftir til aðstoðar.
Sjúkrabifreið með þremur sjúkraflutningamönnum fór áleiðis á staðinn ásamt björgunarsveitinni Ægi á Grenivík en þar sem slysið var utan alfaraleiðar voru fleiri björgunarsveitir boðaðar út til aðstoðar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig boðuð út og sótti hún manninn og lenti með hann á Akureyri rétt fyrir miðnætti.
comments powered by Disqus